Hjá AV Pörtum leggjum við áherslu á breitt vöruúrval og samkeppnishæf verð. Við vinnum beint með stærstu birgjum í Evrópu, sem bjóða upp á mikið úrval af varahlutum fyrir bæði fólksbíla og vörubíla frá þekktum aftermarket framleiðendum, sem og upprunalegum varahlutum, allt á samkeppnishæfu verði.

Afhendingarloforð

Ef pöntunin þín stefnir í að verða sein, færum við hana í hraðari sendingu á okkar kostnað og látum þig vita strax.

Sendingarmátarnir fjórir

Hraðsending, 1 til 3 virkir dagar

Við sendum beint frá Evrópu heim að dyrunum þínum með hröðustu flutningsleiðinni okkar. Pantir þú fyrir klukkan 18:00 á virkum degi fer sendingin af stað næsta virka dag og er yfirleitt komin einum til tveimur virkum dögum síðar. Til dæmis, ef þú pantar á mánudegi fyrir klukkan 18:00 er pakkinn oftast kominn á miðvikudegi, í síðasta lagi á fimmtudegi. Öll gjöld eru innifalin og þú greiðir ekkert við móttöku.

Safnsending, 3 til 5 virkir dagar

Pöntunin þín kemur fyrst í vöruhúsið okkar í Kópavogi, þar sem þú getur sótt hana eða fengið hana senda heim. Við sendum frá Evrópu á mánudögum og fimmtudögum. Pantir þú fyrir klukkan 18:00 daginn áður en sent er af stað fer pöntunin af stað á mánudegi, er komin til Íslands á þriðjudegi og er tilbúin eða fer í útkeyrslu á miðvikudegi. Fari hún af stað á fimmtudegi er hún komin til Íslands á föstudegi og tilbúin eða í útkeyrslu á mánudegi.

Hagkvæm sending, 5 til 10 virkir dagar

Þetta er ódýrasti kosturinn fyrir þá sem geta beðið aðeins lengur, oftast um eina viku. Pöntunin þín kemur fyrst í vöruhúsið okkar, þar sem þú getur sótt hana eða fengið hana senda heim. Við sendum frá Evrópu á þriðjudögum og föstudögum.

Sjóflutningur, 3 til 5 vikur

Þessi leið hentar stærri og þyngri vörum. Bretti og gámasendingar fara frá Evrópu á tveggja vikna fresti. Flutningskostnaðurinn er innifalinn í verði vörunnar, svo þú greiðir ekkert aukalega fyrir sjálfan flutninginn.

Smáa letrið

  • Afhendingartími er talinn í virkum dögum. Frídagar á Íslandi og hjá birgjum okkar í Evrópu bætast við, til dæmis jól og áramót.
  • Einstaka vörur þurfa einn auka dag til að komast á lagerinn okkar í Evrópu. Það kemur fram á vörunni.
  • Pöntun með vörum sem koma á mismunandi tíma er afgreidd þegar síðasta varan er komin, nema um annað sé samið.